Wednesday, June 10, 2009

SÆLL

Barnið sofnaði klukkan hálftíu í gærkvöldi og hefur EKKERT vaknað síðan! Ég hef aftur verið endalaust vaknandi sökum mjólkurflæðis og er komin á fætur þar sem ég get ekki lengur legið sökum óþæginda. Ég vona þó svo sannarlega að þessi svefnríka nótt sé byrjunin á því sem koma skal.